5.3.2008 | 22:17
Frístundabyggð í Dagverðarnesi
Hvað er að gerast í hugum landeigenda í Dagverðarnesi í Skorradal, sem hafa stillt upp við vegg fjölmörgum eigendum sumarbústaða með fáranlegri kröfu um kaup á lóðum langt yfir markaðsverði?
Ekki er lengur um að ræða að hægt sé að framlengja leiguna á sanngjörnum verðum, heldur skal fjórðungur úr hektara verða seldur á níu miljónir eða þú ferð burt! Þetta finnst mér vægast sagt harkalegar aðgerðir.
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, hefur nýlega mælt með stjórnarfrumvarpi á Alþingi um frístundabyggð, sem verja skal rétt sumarbúsareigenda. Frumvarpið fékk einróma stuðning í umræðum á Alþingi fyrir skömmu og er nú til skoðunar í félags- og trygginganefnd þingsins.
Ágætu þingmenn. Er ekki nauðsynlegt að setja þetta mál í flýtimeðferð, þannig að hægt sé að afgreiða frumvarpið sem lög frá Alþingi nú um páskana?
Það er mikið í húfi fyrir sumarbústaðareigendur í Dagverðarnesi, þar sem leigutíminn er að renna út hjá fjölmörgum á næstu vikum. Nú þarf fólk á vernd að halda og það strax.
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.